Hönnun og ráðgjöf í mannvirkjagerð
Verkfræðihönnun og ráðgjöf fyrir allar gerðir mannvirkja. Vandaðar og hagkvæmar lausnir fyrir byggingar og innviði frá hugmynd til hönnunargagna.
Burðarþolshönnun
Burðarþolshönnun fyrir mannvirki af öllum stærðum og gerðum. Hönnum burðarvirki úr steinsteypu, stáli, timbri, límtré og öðrum byggingarefnum. Forsteyptar steinsteypueiningar, CLT-timbureiningar, forspennt og eftirspennt burðarvirki
Byggingar
Hönnum ýmsar húsbyggingar og tryggjum örugga undirstöðu fyrir verkefni þitt.

Samgöngumannvirki
Verkfræðihönnun fyrir fjölbreytt samgöngu- og innviðaverkefni.

Steypuhönnun og rannsóknarverkefni
Sameinum hönnun, rannsóknir og reynslu til að þróa steypulausnir sem uppfylla kröfur um styrk og endingu fyrir fjölbreytt mannvirki.

Greiningar og endurbætur
Ráðgjöf og hönnun vegna breytinga, styrkinga og mats á burðarvirkjum. Jarðskjálftagreiningar og styrkingar með FRP-koltrefjum.
Lagnahönnun
Hönnum lagnakerfi sem tryggja góða innivist og hagkvæman rekstur bygginga.
Byggingastjórn, framkvæmdaeftirlit og verkefnastjórn
Veitum faglegt utanumhald sem stuðlar að skilvirkri framkvæmd frá undirbúningi til verkloka.